14. september 2008 klukkan 15:56
Sæl,Ég áhvað að færa mig yfir í þetta bloggkerfi, lýst svona e-ð betur á það. Svo ég ætla að reyna vera e-ð dugleg að blogga á þessu..
En það sem er að frétta af mér er það að ég og Halldór erum komin til Danaveldis, núna seinsutu daga höfum við sótt um danska kennitölu og símanúmmer sem við vonandi fáum bæði í þessari viku. Síðan hef ég reynt að vera dugleg að fara út með Heru greigið, var að vísu svo löt í gær að hún fékk engan göngutúr, en við fórum nú í klukkutíma göngutúr í dag.
Halldór var að laga bremsurnar á bílnum í gær og tók það nánasta allan daginn, var ég e-ð að skottast hjá honum en var held ég mest bara fyrir :S Helgi bauð fullt af köllum (strákum) í heimsókn í gær að horfa á leikinn og var allveg pakkað fyrir framan sjónvarpið, að við vorum bara úti á meðan í bílnum, eða ja Halldór að gera við og ég að vera fyrir. Vorum við svo löt e-ð eftir þetta að við tókum því frekar rólega og sumir tóku lúr, aðrir voru í tölvunni eða lesa. Þannig að maturinn var frekar seint hjá okkur, vorum held ég ekki að borða fyrr en níu, hálf tíu. Allveg dýrindis svínasteik. Eftir það var tekið í spil og spilað kana.
Í dag var nú ekkert vaknað í fyrrikantnum, en þegar ég druslaðist loks á fætur fórum við Hera út að labba, var það mjög hressandi. Var þá Halldór e-ð farinn að brasa aftur við bílin þegar við komum til baka og tók það svolítinn tíma. Viðar og Sif komu svo með krakkana og fengum við þessa dýrindis skúffuköku sem Hafdís bakaði í dag.
En vitiði hvað, það getur greinilega allt gerst þegar maður fer nú að slappa svona af og ekkert tímabundinn, Já Sigrún fór að lesa bók, það hefur nú ekki gerst oft að hún lesi bók ekki tilneidd. En lýkar mér það bara nokkuð vel, er komin langt á leið með Röddina, allveg hin ágætasta bók.
En ætli ég láti þetta ekki gott heita í bili, vona bara að ég nenni að skirfa fljótt aftur..;)
kv Sigrún #43