Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Sigrún Sigmundsdóttir
  • Staður: Horsens
  • Kyn: kvk

Undirsíðukubbur

Gagnasafn

Latur bloggari..

27. september 2008 klukkan 13:10
Sæl aftur,

Ekki er það nú orðið gott, strax er maður orðinn latur bloggari, en samt allveg ekkert svo slæmt bara vika á milli blogga.
Það hefur nú ekki mikið gerst samt síðan seinast, hef bara farið í ræktina alla morgna og svo bara slappa af og hafa það rólegt restina af deginum. En höfum nú samt allveg brasað e-ð bara lítið merkilegt, fara í göngutúr og svona. Ég fer í viðtal í sprogskólanum á föstudaginn og fæ ég þá að vita hvenær ég get byrjað. 
Í dag fórum við Hafdís smá í bæinn, rosalega var mikið af fólki þar, gaman að sjá mannlífið. Þegar við komum heim var Halldór að slá og Helgi e-ð að brasa úti, rosa duglegir, ég og Hafdís fórum bara að brasa inni. Við fórum svo í krikket á nýslegna grasinu áðan ég, Helgi og Hafdís. Hafdís krikketmeistari vann, Helgi rétt á eftir henni en ég átti nú annsi mikið eftir. Við förum síðan í hangikjöt til vinar Helga og Hafdísar í kvöld.

En núna eru flestir úr minni fjölskyldu á ferðalagi, eða mamma og pabbi eru á bílasýningu í Þýskalandi og Sandra í USA að hita gamla skóla félaga og e-ð. Sessilía litla eina á Íslandinu fagra..

æi nú nenni ég ekki að skrifa meir..
kv Sigrún
Sigrún Sigmundsdóttir

Fyrsti golfhringur Sigrúnar..

21. september 2008 klukkan 18:55
Sæl

Í gær fórum við til Århus, ég, Halldór og Hafdís. Þurftur að rífa okkur upp snemma miðavið laugardag eða á milli 9 og hálf 10 því Halldór pantaði sér klippingu 10:45. Þegar við komum til Århus, þá áhváðum við að leggja í mollinu og labba þaðan, en vorum við orðin frekar sein að það var strunsað í klippinguna. Var þetta á stofunni sem Viðar Kriss er að vinna á, rosa flott svona karlrembustofa. Allvegan 10 tegundir af bjór á dælu og svo fullt af öðru víni og svo klámblöð. Við Hafdís fengum nú samt að koma inn og bíða með það var verið að klippa Halldór. Þegar það var búið að klippa hann svona líka flott löbbuðum við aftur til baka í mollið og skoðuðum í nokkrar búðir, þar á meðal HM og verslaði ég mér einn kjól og buxur til að fara í ræktina. Var nú lítið meira keypt í þessari ferð og bara farið fljótlega heim. 
Svo um kölvið fórum við á nýbúal hjá íslendingafélaginu. Þegar við komum um 11 þegar það var nú samt búinn klukkutíma voru bara nokkrir þannig við fórum til krakka sem Helgi og Hafdís þekkja og vorum þar í slatta tíma og var það mjög gaman. Var síðan skundað aftur á ballið ef ball mætti kalla því það var ekkert danskað bara staðið við barinn og út um allt, fólk að kjafta. Þektum við Halldór nú frekar fáa þarna, eða bara þá sem við hittum í paríinu. Var þetta mjög fínt og vorum við komin heim rúmlega 2, er það nú bara met fyrir mig að vaka framm yfir miðnætti hér. Hef getað sofið endalaust. Er að borga fyrir lítin svefn í sumar hehe ;)
í dag gerðust síðan undur og stórmerki, ég fór fysta skipti í golf að reyna hitta í holu. Hafði bara farið á æfingarsvæðið fyrir nokkrum árum. Varð þetta svo sem ágætis skemmtun, gat hlegið að mínum mishepnuðu höggum en það vísu komu fín högg inn á milli. Spiluðum við e-ð Texas Skrambul, ég og Helgi vorum saman í liði á móti Halldóri og Hafdísi. Það var meirisegja 1 eða 2 notaður boltinn sem ég skaut, var rosa stolt. :D Unnu Halldór og Hafdís okkur með einu höggi. En við vinnum næst ef ég kem mér í það að fara í golf aftur ;)
Erum við síðan bara búin að vera borða og liggja í leti restina af deginu.

En annað sem þarf að ræða, eftir að ég og Halldór fórum úr Vestugilinu er greinilega alldrei neinn heima, eða kannski vilið þið ekki bara svara í síman þegar ég hringi. Því það er alldrei nánast svarað þegar ég hringi. Er bara að spá í því að fara skilja það að þið séuð svona rosalega fegin að vera laus við mig að þið nennið ekki einusinni að tala við mig :S

Bless Bless
Sigrún Sigm.
Sigrún Sigmundsdóttir

Stöðumælasekt :'(

19. september 2008 klukkan 11:39
Hilo
Já í gærkvöldi drifum við okkur í keilu, náðum við að fara 4 leiki á þessum klukkutíma sem maður hefur og fóru nú svona mis vel. Mér gekk vel í fyrsta leiknum og vann, en næstu tveir voru hrein hörumung, alltaf nánast í rennuna, seinasti leikurinn var síðan bara nokkuð góður af minni hálfu.
Löbbuðum síðan út í bíl en þá beið okkar nú ekki skemtilegur snepill á frammrúðunni. Það var stöðumælasekt, já hverju dettur til hugar að maður þurfi að stilla klukkuna kl 9 um kvöld, allvegana ekki okkur. Var okkur síðan sagt að það hafi verið skilti út um allt sem sögðu manni að stilla klukkuna, en danir eru svo nýskri að það var ekki kveikt á neinu útiljósi eða neitt, þannig maður sá nú ekkert mjög vel þarna. En allt í lagi með það en þegar við fórum að skoða upphæðina þá var okkur nú brugðið þetta er ekkert svona 500 kr eða 1000 kr eins og heima nei 510 danskar króur sem gera rúmar 9 þúsund krónur íslenskar. Þannig að þetta var frekar dýr keiluferð fyrir okkur. Ætli við stillum ekki klukkuna bara allstaðar núna eftir þetta ef við þorum að fara e-ð á bílnum eftir þetta. 

Fórum við í ræktina og svona í morgun, og ætlum við að fara núna að leita að vinnu með Helga handa Halldóri. Síðan sjáum við Halldór um matseldina í kvöld. Þannig að það verður bara heimabökuð pizza að hætti okkar ;)

bless í bili..
Sigrún Sigm.
Sigrún Sigmundsdóttir

18 Sept

18. september 2008 klukkan 18:11
Sæl
Það er nó að gera hjá okkur þessa dagana bara að vera í fríi, sem er mjög gott. Við pössum nú samt að hafa allveg tíma til að liggja í róliheitunum, eða Halldór í Football Manager (FM) og ég að brasast e-ð. Í gær byrjuðum við daginn á að hjóla í bæinn og taka út pening til að kaupa kort í ræktinni, var hraðbankinn e-ð í fílu við mig og vitli ekki leifa mér að taka út svo Halldór tók pening sem átti að duga fyrir okkur báðum miðað við hvað stelpan hafði sagt okkur í rætinni daginn áður. En þegar við komum í ræktina þá ætlaði hún ekki fyrsta að leifa okkur að gerast meðlimir því við vorum ekki með danska kennitölu og danskan bankareikning en slepti hún okkur nú við það því við sögðum ætla láta hana fá það um leið og við fengjum þetta. En síðan þegar við ætluðum að borga þá var þetta dýrar því við þurftum að borga einn og hálfan mánuð. Borgðum við þá mitt og ætlaði hún að vera svo góð að leifa Halldóri samt að fara. Fórum við þá að skipta um föt, en komst þá hann að því að hann hafði gleymt stuttbuxunum, svo hann fór bara heim og ég reyndi að púla e-ð.
Reyndi ég svo að læra e-ð þegar ég kom heim. Fórum við síðan með Helga að klippa runnana og þetta eru sko engri smá runnar, tókum við aðra hliðina á honum og toppinn. Náðum við að fylla kerruna með því. 
Mydir af þessu inn í myndaalbúminu, kann ekki ennþá að seta myndir hér inn :S

Í dag þegar Halldór hunskaðist loksins á lappir fórum við í rætina og náðum þá að borga og gera allt klárt fyrir hann. Vorum við síðan bara nokkuð dugleg held ég að púla. 
Eftir það fórum við og elduðum okkur pasta, ég svo að læra og Halldór í FM og ég að læra í eðlisfrði. Fórum við svo út og kláuðum að klippa runnana eða þennan hluta af runnunum.

Í kvöld er Bridge kvöld hjá Helga og Hafdís að fara í sumaklúbb svo við erum að spá í að fara í keilu. 

bæbæ
Sigrún Sigm.
Sigrún Sigmundsdóttir

Hjól keypt.

16. september 2008 klukkan 18:17

Já góðan og blessaðan daginn..

       Ég og Halldór löbbuðum í bæinn í dag og komum við á Fitnessdk sem er líkamsræktastöð hérna rétt hjá, svona til að skoða og tjakka hvað það kostar kort þar, okkur leyst mjög vel á hana og ætlum við líklegast að fara þangað aftur í fyrramálið og kaupa okkur kort og reyna að hreyfa okkur e-ð eða allvegna fara í gufu, rosa flott gufan og sturturnar þarna. ;)

       Við löbbuðum um allan bæinn en náðum nú ekki að eyða neinu, bara fá blöðrur á hælana.. :(

       Já í dag gerðist ég allvöru dani og keypti mér hjól, ætla nú að fara hjóla flestra minna ferða. Eða allvegna í skólan þegar ég byrja og ræktina. Svona áður en ég flutti til DK hélt ég að hjól væru frekar ódýr hér, því það eru nú allir á hjólum hér. En raunin var nú önnur, flest hjól eru nú bara svona 3 gíra gamaldags kannski allveg 7 gíra og var maður heppinn ef maður fann það á 2000 dk krónur eða 35 þúsund ísl kr miðavið gengið í dag. Sem getur nú varla verið verra. Ég fann mér nú samt hjól í BILKA, sem er  uppáhaldsbúðin mín hér held ég, því þar fæst allt, svona þvílíkt flott 21 gíra fjallahjól eins og við íslendingar viljum, ekki með einhver geisladiska dekk. Fékk ég þetta fína hjól á 1900 dk krónur, allt of dýrt en ekki nenni ég að labba allt.. :S En Halldór ætlar síðan að eiga það þegar við komum heim því ég á nú mjög fínt hjól heima á klakanum. Þannig að hjólið er nú kannski aðeins í stærri kanntinum fyrir mig en samt allt í lagi.

Mynd af hólinu inn í myndum (gat nefnilega ekki sett hana hér inn :S)

 

Já svo gleymdi ég næstum einu. Við erum komin með Dönsk símanúmmer

Ég Sigrún 0045-5320-6863

Halldór     0045-5320-6864

Svo það má allveg endilega hringja eða senda okkur sms.

Síðan er heimanúmmerið okkar 496 0201 og er það Atlassími og kostar þá bara eins og maður sé að hringja í heimasíma á íslandi, mjög þæginlegt og gott. 

En bless í bili.. 

KV. Sigrún Sigm.

Sigrún Sigmundsdóttir

Bjórvegur 10

14. september 2008 klukkan 15:56
Sæl,
Ég áhvað að færa mig yfir í þetta bloggkerfi, lýst svona e-ð betur á það. Svo ég ætla að reyna vera e-ð dugleg að blogga á þessu..

En það sem er að frétta af mér er það að ég og Halldór erum komin til Danaveldis, núna seinsutu daga höfum við sótt um danska kennitölu og símanúmmer sem við vonandi fáum bæði í þessari viku. Síðan hef ég reynt að vera dugleg að fara út með Heru greigið, var að vísu svo löt í gær að hún fékk engan göngutúr, en við fórum nú í klukkutíma göngutúr í dag. 
Halldór var að laga bremsurnar á bílnum í gær og tók það nánasta allan daginn, var ég e-ð að skottast hjá honum en var held ég mest bara fyrir :S Helgi bauð fullt af köllum (strákum) í heimsókn í gær að horfa á leikinn og var allveg pakkað fyrir framan sjónvarpið, að við vorum bara úti á meðan í bílnum, eða ja Halldór að gera við og ég að vera fyrir. Vorum við svo löt e-ð eftir þetta að við tókum því frekar rólega og sumir tóku lúr, aðrir voru í tölvunni eða lesa. Þannig að maturinn var frekar seint hjá okkur, vorum held ég ekki að borða fyrr en níu, hálf tíu. Allveg dýrindis svínasteik. Eftir það var tekið í spil og spilað kana.

 

Í dag var nú ekkert vaknað í fyrrikantnum, en þegar ég druslaðist loks á fætur fórum við Hera út að labba, var það mjög hressandi. Var þá Halldór e-ð farinn að brasa aftur við bílin þegar við komum til baka og tók það svolítinn tíma. Viðar og Sif komu svo með krakkana og fengum við þessa dýrindis skúffuköku sem Hafdís bakaði í dag.

 

En vitiði hvað, það getur greinilega allt gerst þegar maður fer nú að slappa svona af og ekkert tímabundinn, Já Sigrún fór að lesa bók, það hefur nú ekki gerst oft  að hún lesi bók ekki tilneidd. En lýkar mér það bara nokkuð vel, er komin langt á leið með Röddina, allveg hin ágætasta bók.

 

En ætli ég láti þetta ekki gott heita í bili, vona bara að ég nenni að skirfa fljótt aftur..;) 

 

kv Sigrún #43

Sigrún Sigmundsdóttir